: Grimmsbræður
: Tvíeyringurinn
: SAGA Egmont
: 9788728036792
: 1
: CHF 0.80
:
: Erzählende Literatur
: Icelandic
: 2
: Wasserzeichen
: PC/MAC/eReader/Tablet
: ePUB
Í draugasögunni um Tvíeyringinn segir frá aðkomumanni sem segist sjá barn ganga þegjandi um stofu hjónanna hvar hann er gestkomandi. Í fyrstu þekkja húsráðendur ekki til barnsins en átta sig fljótlega á því hver þarna gæti verið genginn aftur. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.

Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska