''Hún brosir þegar hún hugsar til þess þegar þau keyrðu út í skóg. Þegar hún lagði á fáförnum moldarvegi við rætur skógarins. Þegar það var svo hlýtt að þau þurftu að hafa alla glugga opna. Þegar ilmurinn af dögginni og söngur svartþrastanna náði inn í bílinn til þeirra. Þegar hún öskraði svo hátt að fuglarnir þögnuðu.'Saga þessi er gefin út í samvinnu við sænska kvikmyndaframleiðandann Eriku Lust. Markmið hennar er að miðla mannlegu eðli og fjölbreytni þess í gegnum öflugar, ástríðufullar sögur af nánum kynnum, girnd og ást.'-
Sarah Skov er dulnefni ungrar skáldkonu. Hún hefur líka skrifað erótísku sögurnar Minningar um þig, Heltekin af Owen Gray, Borðaðu með mér, Minningar um þig og Femínistinn. |